Heilsu- og lífsstílsþjálfun Bryndísar

Rating 5.0 (average of 2 opinions)

Bryndís Guðmundsdóttir Heilsumarkþjálfi, jógakennari, einkaþjálfari og Fitline söluaðili. Með áralanga reynslu af heilsurækt, þjálfun og ráðgjöf um heilsu og næringu.




Bryndís er með áralanga reyslu af heilsurækt og þjálfun,
Þessi síða er til að miðla ýmsum jákvæðum og uppbyggilegum upplýsingum um allt sem snýr að heilsu og vellíðan.
Ásamt því að kynna þær aðferðir sem Bryndís býður í heilsurækt.

Bryndís heldur heilsuræktarnámskeið í heildrænni þjálfun.
Bæði í gegnum einkaþjálfun og jógaiðkun.
Einnig heilsuráðgjöf í gegnum einkaviðtöl.

Lífsstílsnámskeiðin fyrir konur byrjaði Bryndís að halda eftir að hafa aðstoðað fjölda kvenna í tæp 10 ár við að gera góðar breytingar í gegnum einkaþjálfun.
Þjálfunin er mjög persónuleg og einstaklingsmiðuð út frá ástandi og markmiðum hverrar og einnar. Takmarkaður fjöldi er í hóp til að tryggja gott utan um hald og hámarks árangur.
Að æfa eins og í einkaþjálfun en vera í litlum hóp veitir einnig félagaslegan stuðning og hvatningu.

Bryndís er Rope Yoga kennari frá 2006 og Yoga Nidra kennri frá j2015, ásamt því að vera Heilsumarkþjálfi frá IIN 2017.
Bryndís hefur leiðbeint fólki á aldrinum 14 - 82 ára.

Í jóga gefst iðkendum tækifæri til að rækta líkama, sál og huga í friðsælli umgjörð til að bæta bæði líkamlega og andlega líðan sína, sem og að viðhalda góðu heilbrigði og jafnvægi.

Markmið Bryndísar er að veita fyrsta flokks persónulega þjónustu með heilbrigðri hvatningu og leiðbeina iðkendum í gegnum fróðleik og kennslu í áttina að heilbrigðum lífsstíl.

Það er einlægur ásetningur Bryndísar að bjóða uppá heildræna heilsurækt sem byggir upp jákvæð lífsviðhorf og styrkir jákvæða sjálfsmynd.

Lífsstílsnámskeiðin fyrir konur eru haldin í lokuðum sal hjá Crossfit Selfoss.

Jóganámskeiðin eru haldin í Jógastofunni að Ausutvegi 21 á Selfossi.

Hægt er að hafa samband við Bryndísi með Facebook skilaboðum, tölvupósti eða í gegnum síma, bæði til að fá upplýsingar og skrá sig á námskeiðin og einnig til að panta tíma í persónulega heilsuráðgjöf.

    Salute/bellezza, Servizi professionali

   6166181

      Facebook page

      Selfoss, Iceland

Leave a comment




"Find your fav relax venue... in one click"