Tannhvíttun með laser

Tökum á móti pöntunum í síma 615-3333 eða sendið okkur tölvupóst á netfangið info@tannhvittun.is




Tannhvíttun með Laser er notuð mjög víða í Usa og í Evrópu með frábærum árangri.

Tannlæknar erlendis nota þessa tækni og víða hafa verið settar upp stofur sem sérhæfa sig í tannhvíttun.

Nú loksins í boði á Íslandi.



Verðskrá
Meðferðir & eftirmeðferðarpennar:

Tannhvíttun 25.900 kr

Vítamín penni 2000 kr

Eftirmeðferðarpenni 4900 kr



Um pennana okkar.

Eftirmeðferðarpenninn er notaður í 5 kvöld í röð.
Byrjar að nota hann strax kvöldið eftir meðferðina.
Þú burstar tennurnar eðlilega, setur spennuna sem
þú færð með þér upp í munninn, Pennslar létt úr pennanum
upp eftir neðri tönnum og niður eftir þeim efri.
Bíður með spennuna í ca 5 mín, tekur þá spennuna
úr. Skolar munninn eftir hálftíma til klst.
Engin óþægindi – ekkert mál.

Eftirmeðferðarpenninn gerir tennurnar hvítari, dýpkar
hvíttunina og þar af leiðandi endist hún lengur.
Verð: 4.900 kr

Vítamín penninn er snilld fyrir þá sem eru með viðkvæmar
tennur, færð oft kul og óþægindi.
Hann er fullur af vítamínum og steinefnum til
að byggja upp viðkvæmar tennur.
Hann er notaður eftir burstun á kvöldin, pennslað létt yfir
tennurnar, upp eftir neðri tönnum og niður eftir þeim efri.
Ekkert skolað.
Bragðið er mjög gott – eins og nammipenni.
Verð: 2.000 kr


Hvernig tannhvíttun býður
„Tannhvíttun með Laser” upp á ?Við bjóðum þig innilega velkomna/velkominn til okkar. Við byrjum á að spyrja þig nokkurra spurninga og síðan hefst meðferðin. Við berum tannhvíttunarefnið á og þú slakar á í „Lasernum” okkar undir mjúku teppi og hlustar á slakandi tónlist. Meðferðin tekur um það bil 80 mínútur með öllu.
Geta allir komið í Tannhvíttun ?

Lang flestir eiga að geta komið í hvíttun. Ef þú ert í einhverjum vafa þá ráðleggjum við þér að hafa samband við tannlækninn þinn og fá álit hans.

Eru það ekki bara tannlæknar sem hvítta tennur ?

Fyrir tveimur árum fór framleiðandinn okkar að útskrifa tannhvíttunar-fræðinga. Tannhvíttunarefni flokkast sem snyrtivörur. Ef rétt er farið að og viðkomandi búinn að læra tannhvíttun þá á allt að vera í lagi, en við ítrekum að ef þú ert í einhverjum vafa um tannheilsu þína þá ráðleggjum við þér eindregið að fá álit tannlæknisins þíns.

Lýsast brýr, fyllingar og krónur ?

Við segjum nei við því , en krónur, fyllingar og brýr sem eru orðnar nokkurra ára gamlar lýsast yfirleitt eitthvað þar sem þær hafa tekið í sig einhvern lit á þessum árum. Við höfum auðvitað séð krónur, fyllingar og brýr lýsast, en berum ekki ábyrgð á því að það gerist. Tannlæknirinn þinn getur gefið þér ráðleggingar við því hvort krónan, fyllingin eða brúin þín sé orðin of gul eða grá.

Af hverju upplitast tennurnar mínar – verða gular ?

Það er svo margt sem við látum upp í okkur sem litar. Þó að þú burstir tennurnar reglulega og hugsir vel um þær þá kemur það ekki í veg fyrir að þær litist. Kaffi, te, rauðvín, orkudrykkir, gos, djús, tómatsósa, karrý, sælgæti, reykingar, munntóbak, aldur, gen o.f.l o.fl getur haft áhrif á lit tanna okkar.

Er efnið sem þið notið hættulegt ?

Framleiðandinn okkar framleiðir hvíttunarefni fyrir tannlækna líka svo við segjum nei við því. Efnin sem við notum eru ekki af sama styrkleika og hjá tannlæknunum, þess vegna eru minni líkur á óþægindum, sársauka og kuli. Það er samt aldrei hægt að ábyrgjast eitt eða neitt í þessum efnum, það kemur alltaf upp eitt og eitt tilfelli þar sem fólk finnur fyrir einhverjum óþægindum í smá tíma, þ.e.a.s einhverjar klukkustundir, en það er mjög sjaldgæft.

Er mikill árangur af hvíttuninni ?

Já það er mikill og góður árangur af þessari hvíttun – þú sérð mikinn mun á þér strax eftir fyrsta korterið. Ferð alltaf upp um nokkur birtustig í meðferðinni.

Sp. Hverjir ættu EKKI að undirgangast tannhvíttun?

Sv. Enginn á þessum lista ætti að fara í tannhvíttun:
- Barnshafandi konur og konur með börn á brjósti
- Fólk með lélegan glerung eða kalkskort vegna óhóflegrar flúornotkunar
- Fólk með tannholdsbólgu þ.m.t. gingivitis eða góma í slæmu ástandi
- Fólk sem er með spangir eða var með spangir fyrir minna en 6 mánuðum síðan
- Fólk sem nýlega hefur gengist undir aðgerð í munni
- Fólk með tennur sem farnar eru að halla eða eru með sjáanlega rót
- Fólk með opnar tannskemmdir
- Fólk með sögu um ofnæmisviðbrögð gegn peroxíð vörum
- Fólk með silfurfyllingar í eða nálægt fremri tönnum
- Fólk undir 18 ára aldri

Fólk sem þetta á við eru mjög fá tilfelli, svo að það má áætla að yfir 90% fólks geti undirgengist og séð árangur af tannhvíttunarmeðferð.

Sp. Geta allar tennur verið hvíttaðar?

Sv. Þegar innri uppbygging tannar verður dekkri eða gulnar, verður bletturinn erfiðari að fjarlægja eða (fer eftir orsökinni), er alls ekki hægt að fjarlægja. Sem dæmi, þá veldur tetracycline (sýklalyf) því að innri bygging tanna blettast, þegar börn yngri en 8 ára eða konur á seinni hluta meðgöngu nota lyfið. Þessir blettir verða ekki fjarlægðir með hvíttun.

Fluorosis, er ástand tanna sem hlýst af of mikilli notkun á flúori meðan tennur voru að þroskast, það er einnig erfitt að ná góðum árangri á slíkum tönnum með hvíttun. Milt eða meðalmikið fluorosis, með einkennum á við línur eða bletti má minnka með hvíttunarefnum eða meðferðum. Hvíttun mun hins vegar ekki virka í alvarlegri tilfellum.

Gangi þér vel!

    Servizio di sbiancamento dentale, Salone di bellezza

    588 6777 og 615 3333

   tannhvittun.is

      Facebook page

      Hafnargata 23, Keflavík, Iceland

  Internal parking, Parking in the street

   
Monday
09:00-18:00
Tuesday
09:00-18:00
Wednesday
09:00-18:00
Thursday
09:00-18:00
Friday
09:00-18:00
Saturday
Closed
Sunday
Closed


Leave a comment


Other in the area



"Find your fav relax venue... in one click"